Ekki beinlínis? Eða hver er trúin? Stendur
fólk á söfnum eftir
1000 ár að skoða krossa Krists og bænateppi múslima, brjótandi
heilann hvernig nokkrum gat komið til hugar að trúa á líf eftir
dauðann - jafnvel eilíft líf?
Beygt og Bogið?
Eða hver eru rökin? Safn
orða um orð? Heimildalistar og tilvísanir? Hártoganir, lengri en
rani Ganhesar? Ormagryfja sláttumanna? Rökræða um fyllingu tímans
eða magamál?
Rétt eða rangsælis? Eða
hver er heimspekin?
Mælskufræði, mælskulist? Fjölmæli, einræður? Rakalausar ræður eða
boðskapur oflátunga? Keppni í stíl, keppni í tísku?
Milli línanna? Eða hver er miðlunin? Röndótt,
svart/hvít eða í öllum regnbogans litum? Hvert safnast boðskapurinn?
Hlýðir fjöldinn - hlýðir á, les og horfir á? Og greinir á milli línanna?
|